Veldu Rafbíl

Mini Aceman

E

5.890.000 kr. ↗ með styrk
Styrkurinn lækkar 1. nóvember
Umsóknir sem eru samþykktar 1. nóvember eða síðar fá 400.000 kr., og þá kostar þessi 5.990.000 kr. Til að fá 500.000 kr. styrk þarf bíllinn að vera nýskráður og umsóknin samþykkt fyrir mánaðamót.
Drægni
310 km
WLTP
Hröðun
7.9s
0-100 km/klst
Rafhlaða
42.5 kWh
Sæti
5
Hraðhleðsla
7.75 km/min
10–80% á 28 mín
Afl
135 kW
184 hö
Drif
FWD
Framhjóladrif
Verð á km drægni
19.000 kr.

Í hnotskurn:

Mini Aceman E er lítill og nettur jepplingur með líflegri hönnun Mini, ætlaður þeim sem vilja persónulegan og lipran bæjarbíl með fimm sætum.

Hann er auðveldur í þröngum stæðum og fremur ódýr, og vandaður frágangur og sérstæð innrétting gera hann eftirminnilegri en flesta smábíla. Hann má líka draga 750 kg, sem Fiat 500e og Fiat 600e mega ekki.

Á móti kemur að hann drífur mjög stutt, sérstaklega í vetrarkulda, er meðal þeirra sem hlaða hægast í sínum verðflokki og skottið er eitt það minnsta. Fiat 600e er 100.000 kr. ódýrari, drífur 90 km lengra og hleður með um 30% styttri stoppum.

Aceman E er heillandi bæjarbíll, en síður heppilegur ef ferðast er reglulega milli landshluta.

Þú gætir líka haft áhuga á:

Bera alla saman