Veldu Rafbíl

Volkswagen ID.3 Neo

58 kWh · Væntanlegur lok 2026

5.990.000 kr. áætlað verð með styrk ↗
Verðið miðast við nýja styrkinn
Rafbílastyrkurinn lækkar 1. nóvember, áður en bíllinn kemur, svo verðið hér er eftir 400.000 kr. styrk.
Drægni
494 km
WLTP
Hröðun
8.0s
0-100 km/klst
Rafhlaða
58 kWh
Sæti
5
Hraðhleðsla
13.3 km/min
10–80% á 26 mín
Afl
140 kW
190 hö
Drif
RWD
Afturhjóladrif
Verð á km drægni
12.126 kr.

Í hnotskurn:

Volkswagen ID.3 er fimm sæta hlaðbakur sem hefur skipað sér sess sem lipur og þægilegur bíll í daglegan akstur. Hann hentar sérstaklega vel þeim sem vilja nettan fólksbíl sem auðvelt er að leggja og athafna sig á í þéttbýli, án þess að fórna góðum aksturseiginleikum.

Í sínum verðflokki drífur hann lengra en flestir keppinautar. Drægnin dugar vel á milli landshluta og ætti að skila vel yfir 350 kílómetrum í vetrarkulda. Hann hleður jafnframt hraðar en gengur og gerist, sem styttir viðkomur á hleðslustöðvum á ferðalögum um landið.

Afturhjóladrifið veitir þó minna öryggi í hálku en framhjóladrif keppinautanna, auk þess sem hann er aflminni og hægari en flestir þeirra. Ef hámarksdrægni fyrir peninginn vegur þyngst er Kia EV3 Long Range til að mynda 200.000 kr. ódýrari og býður upp á 111 km meiri drægni.

ID.3 stendur engu að síður vel fyrir sínu sem liðugur og traustur bíll, einkum fyrir þá sem meta þýska akstursánægju og vilja staldra stutt við á hraðhleðslustöðvum.

Þú gætir líka haft áhuga á:

Bera alla saman