Veldu Rafbíl

BMW iX3

40

9.490.000 kr. ↗ með styrk
Styrkurinn fellur niður 1. nóvember
Bílar sem kosta meira en 8 milljónir fá engan styrk ef umsóknin er samþykkt 1. nóvember eða síðar, og þá kostar þessi 9.990.000 kr. Til að fá 500.000 kr. styrk þarf bíllinn að vera nýskráður og umsóknin samþykkt fyrir mánaðamót.
Drægni
637 km
WLTP
Hröðun
5.9s
0-100 km/klst
Rafhlaða
87.5 kWh
Sæti
5
Hraðhleðsla
21.2 km/min
10–80% á 21 mín
Afl
235 kW
320 hö
Drif
RWD
Afturhjóladrif
Verð á km drægni
14.898 kr.

Í hnotskurn:

BMW iX3 40 er stór og vandaður jepplingur með afturhjóladrifi, af nýrri kynslóð rafbíla BMW, sem leggur áherslu á langferðir, fágaðan akstur og þægindi.

Í sínum verðflokki er hann meðal þeirra langdrægustu og þeirra sem hlaða hraðast, svo langferðir um landið kalla á fá og stutt stopp. Hann má draga 2.000 kg, með því mesta á þessu verði, og auk skottsins er 58 l framskott.

Hann er hins vegar aflminni og hægari en flestir keppinautar hans og aðeins afturhjóladrifinn, sem kallar á meiri varkárni í snjó og hálku. BMW iX3 50 xDrive fæst með fjórhjóladrifi og 168 km meiri drægni fyrir 2.500.000 kr. meira.

iX3 40 er einn sterkasti langferðabíllinn á sínu verði, fyrir þá sem þurfa ekki fjórhjóladrif.

Þú gætir líka haft áhuga á:

Bera alla saman