Veldu Rafbíl

Volvo EX60

P10

10.890.000 kr. ↗
Drægni
660 km
WLTP
Hröðun
4.6s
0-100 km/klst
Rafhlaða
91 kWh
Sæti
5
Hraðhleðsla
24.3 km/min
10–80% á 19 mín
Afl
375 kW
510 hö
Drif
AWD
Fjórhjóladrif
Verð á km drægni
16.500 kr.

Í hnotskurn:

Volvo EX60 P10 er stór og aflmikill lúxusjeppi með fjórhjóladrifi, sem sameinar látlausa skandinavíska hönnun, mikið öryggi og þægindi. Hann hentar fjölskyldum sem vilja vandaðan jeppa sem gefur lítið eftir á langferðum.

Hann drífur lengra og hleður hraðar en flestir á svipuðu verði, svo langferðir um landið kalla á fá og stutt stopp, jafnvel í vetrarkulda. Hann er líka sneggri en flestir þeirra og má draga 2.400 kg, sem fáir keppinautar hans jafna.

Á móti kemur að hann er fremur dýr og skottið er aðeins í meðallagi. Þurfi enn meiri drægni fæst Volvo EX60 P12 fyrir 1.000.000 kr. meira, með 810 km drægni.

EX60 P10 er heildstæður kostur fyrir þá sem vilja vandaðan fjölskyldujeppa til ferðalaga um landið, með kerru aftan í ef svo ber undir.

Þú gætir líka haft áhuga á:

Bera alla saman